Höfðu strax samband við alla

Vinnumálastofnun
Vinnumálastofnun mbl.is/Ómar Óskarsson

Strax og fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar kom fram ákvað Vinnumálastofnun að hafa samband við alla þá sem stytting bótaréttar hefði áhrif á um áramótin, kynna þeim áhrif breytinganna og veita þeim aukna aðstoð og ráðgjöf. Öllum var boðið í viðtal til starfs- og námsráðgjafa þar sem farið var yfir stöðu mála.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vinnumálastofnun sem send var út vegna umræðu um styttingu bótaréttar skv. lögum nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Í henni segir að í farið hafi hverjum og einum verið boðin aukin aðstoð við atvinnuleit og farið yfir hvaða vinnumarkaðsúrræði sem stofnunin hefur upp á að bjóða gæti helst komið viðkomandi að gagni.

„Með vinnumarkaðsúrræðum er auk aðstoðar við atvinnuleit átt við einstaklingsbundna ráðgjöf, námskeið eftir þörfum hvers og eins, störf með styrk til atvinnurekenda sem nemur andvirði grunnbóta eða framfærslu sveitarfélaga, starfsendurhæfingu ofl.

Frá því að Vinnumálastofnun greip til þessara ráðstafana í september hafa yfir 150 einstaklingar sem fengið höfðu greiddar atvinnuleysistryggingar í 30 mánuði eða lengur fundið sér atvinnu eða önnur úrræði og farið af skrá Vinnumálastofnunar.

Þjónusta Vinnumálastofnunar stendur öllum atvinnuleitendum til boða, óháð því hvort þeir eigi rétt til atvinnuleysisbóta eða hafi tæmt hann og hefur Vinnumálastofnun ítrekað það gagnvart þeim sem í hlut eiga.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert