„Ekkert fréttnæmt gerðist á varðsvæði LRH í nótt,“ segir í tilkynningu frá lögreglu höfuðborgarsvæðisins. Telst þetta til töluverðra tíðinda enda varla sú aðfaranótt sunnudags sem líður hjá án þess að lögregla þurfi að grípa til aðgerða sem teljast fréttnæmir.
Af tilkynningu lögreglunnar á öllu höfuðborgarsvæðinu verður því ekki annað ráðið en að skemmtanahald hafi gengið fyrir sig með miklum ágætum, fangaklefar séu tómir og ökumenn hafi allir verið allsgáðir í umferðinni.