Kviknaði í bíl í Svínahrauni

Suðurlandsvegur í Svínahrauni
Suðurlandsvegur í Svínahrauni

Eldur kom upp í bifreið sem var á ferð um Svínahraun í gærkvöldi. Að sögn lögreglu stöðvaði ökumaður bifreiðina þegar hann varð eldsins var og sluppu bæði hann og farþegi bifreiðarinnar út úr henni án meiðsla.

Slökkvilið Hveragerðis kom á staðinn og slökkti eldinn en eins höfðu vegfarendur sem áttu leið um veitt aðstoð við slökkvistarfið. Bifreiðin er illa farin eftir eldinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert