Nýr forstjóri Norræna hússins

Mikkel Harder Munck-Hansen tekur við af Max Dager.
Mikkel Harder Munck-Hansen tekur við af Max Dager.

Daninn Mikkel Harder Munck-Hansen mun taka við stöðu forstjóra Norræna hússins 1. janúar 2015. Það var einróma álit stjórnar Norræna hússins og framkvæmdastjórnar Norrænu ráðherranefndarinnar að tilnefna hann til starfsins, að því er segir í tilkynningu.

Forstjóri Norræna hússins er ráðinn til fjögurra ára í senn með möguleika á framlengingu samnings um fjögur ár til viðbótar.

Munck-Hansen hefur síðast gengt stöðu forstjóra Miðstöðvar fyrir menningu og þróun (Center for Kultur og Udvikling) en það er sjálfstæð stofnun sem heyrir undir danska utanríkisráðuneytið. Áður hefur hann verið stjórnandi Kvikmyndahátíða Kaupmannahafnar (De Københavnske Filmfestivaler), 2008-2009; yfirmaður leikaradeildar Hins Konunglega leikhúss (Det Konglige Teater), 2003-2008; yfirmaður útvarpsleikhúss DR, 2000-2003; Leikhússtjóri Kaleidoskop, 1994-2000.

Síðan 2011 hefur Munck-Hansen setið í stjórn Dansehallerne, þá útnefndur af menningarráðuneyti Danmerkur.Staða forstjóra Norræna hússins var auglýst laus til umsóknar nú í vor og sóttu 57 aðilar um starfið.

Max Dager, fráfarandi forstjóri Norræna hússins, hefur gengt starfinu síðan 1. janúar 2007.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert