Staðið vörð um íslenska hagsmuni

Úr safni.
Úr safni. mbl.is/Gunnar

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið synjaði í gær grænlenskri útgerð um leyfi til að landa hér norsk-íslenskri síld sem veidd var í grænlenskri lögsögu. Ráðuneytið segist vera að verja íslenska hagsmuni. Tilgangurinn með banninu sé að standa vörð um síldarstofninn sem hafi átt í vök að verjast undanfarin ár.

Fram kemur í tilkynningu frá atvinnuvegaráðuneytinu, að afstaða þess í þessum efnum hafi lengi legið fyrir.

„Hún byggist á að þeir sem ekki eru aðilar að strandríkjasamningi um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum fá ekki að landa hér á landi. Þetta er í samræmi við lög, nánar tiltekið 3. gr. laga nr. 22/1998 um veiðar og vinnslu erlendra skipa í íslenskri fiskveiðilandhelgi. Þetta ákvæði er í samræmi við þau sem mörg önnur lönd hafa og beita við hliðstæðar kringumstæður.  

Grænlenskum yfirvöldum hefur verið gerð grein fyrir afstöðu Íslendinga; m.a. á samráðsfundi landanna um fiskveiðar í mars. Grænlenskum útgerðum, sem gera út á veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum, í grænlenskri lögsögu, ætti því ekki að koma þessi afstaða á óvart.

Tilgangurinn með banninu er að standa vörð um norsk-íslenska síldarstofninn, sem hefur átt mjög í vök að verjast undanfarin ár vegna lítillar nýliðunar og verja þannig íslenska hagsmuni,“ segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert