Ung íslensk kona lést á Suður-Spáni í gær. Samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu var um sviplegt andlát að ræða en ekki er talið að það hafi borið að með saknæmum hætti.
Konan sem lést var á þrítugsaldri. Utanríkisráðuneytið veitir nú fjölskyldu konunnar aðstoð vegna málsins.
Nánari upplýsingar liggja ekki fyrir.