Heiðruð fyrir vistvænar samgöngur

Dagur afhendir Páli Hjólaskálina í dag.
Dagur afhendir Páli Hjólaskálina í dag. mbl.is/Ómar Óskarsson

Í dag lauk evrópskri samgönguviku og veitti Reykjavíkurborg árlega samgönguviðurkenningu sína í dag. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, afhenti viðurkenningarnar síðdegis í dag.

Þrír aðilar hlutu viðurkenningar í dag en það voru Sesselja Traustadóttir, Landspítalinn og Fjármálaeftirlitið.

Sesselja Traustadóttir var heiðruð sérstaklega sem frumkvöðull, en hún hefur verið einstaklega ötul við að hvetja  borgarbúa að nýta sér hjólreiðar sem samgöngumáta.

Samkvæmt tilkynningunni hefur Sesselja lagt mörgum verkefnum lið. Hún hefur staðið vaktina í verkefninu Hjólað í vinnuna, einn upphafsmanna Hjólum í skólann og verið með fyrirlestra um hjólreiðar og hjólafærni víða. 

Landspítalinn fékk Samgönguviðurkenningu 2014 í hópi stórra vinnustaða. Spítalinn setti sér samgöngustefnu í maí 2011 og síðar heildstæða umhverfisstefnu.

Samkvæmt tilkynningunni kom það fram í könnun spítalans árið 2011 sýndu starfsmenn áhuga á að ferðast með vistvænum hætti og í  kjölfarið var hafist handa við að bæta aðstöðu hjólreiðamanna og koma á afslætti í strætó fyrir starfsfólk. Góðri aðstöðu fyrir hjól með hjólastæðum, yfirbyggðum hjólastæðum og læstum hjólageymslum var komið upp. 

Landspítalinn hefur sýnt að hægt er að breyta stemningu og virkja starfsfólk.  Í ljósi aðgerðaráætlunar spítalans um vist- og heilsuvænar samgöngur getum við jafnvel búist við enn meiri árangri.

Þá fékk Landspítalinn einnig Hjólaskálina, viðurkenningu fyrir bætta hjólamenningu eins og mbl.is fjallaði um fyrr í dag.

Síðast en ekki síst þá hlaut Fjármálaeftirlitið Samgönguviðurkenningu 2014 í hópi lítilla vinnustaða.  Hjá Fjármálaeftirlitinu var samgöngustefna innleidd í júní 2013 og á sama tíma voru teknir upp samgöngusamningar við starfsfólk.  Um mitt þetta ár var þriðjungur starfsmanna með virkan samning.

Í tilkynningu kemur fram að samkvæmt ferðavenjukönnun fór hlutfall þeirra sem koma oftast einir í bíl niður úr 84% í 58% á milli ára. Fjármálaeftirlitið tekur reglulega saman heilsufarsmælingar og hefur sýnt sig að þeir sem eru með virkan samgöngusamning eru almennt minna frá vegna veikinda en þeir sem eru ekki með samning.

Dagur og Páll voru glæsilegir á hjólunum.
Dagur og Páll voru glæsilegir á hjólunum. mbl.is/Ómar Óskarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert