Herkúlesvél með bilaðan hreyfil lenti á Keflavíkurflugvelli í vikunni. Tilkynnt var um óvissustig þar sem um væri að ræða bilun í einum hreyfli vélarinnar af fjórum.
Sjö manns voru í áhöfn vélarinnar og tókst lending hennar giftusamlega, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.