Gult, rautt, brúnt, appelsínugult. Um þessar mundir tekur gróðurinn á sig nýjar myndir, haustið er komið.
Ómar Óskarsson, ljósmyndari Morgunblaðsins og mbl.is, rölti um Elliðaárdalinn í dag og fangaði haustlitadýrðina. Myndirnar er að finna í myndasyrpu sem fylgir fréttinni.