Lögreglan á Vestfjörðum, björgunarsveitir á svæði 6 í Vesturbyggð, og þyrla Landhelgisgæslunnar leita nú að þýskum ferðamanni á og við Látrabjarg.
Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni, að maðurinn heiti Christian Mathias Markus, fæddur 11. október 1980.
Fjölskylda mannsins í þýskalandi fór að óttast um Christian sl. laugardag og hafði samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu og ríkislögreglustjóraembættið.
Síðast sást til Christians yfirgefa hótelið í Breiðuvík í Vesturbyggð þann 18. september sl. Hann var einsamall á ferð, ók bílaleigubifreið af gerðinni Suzuki Grand Vitara. Sú bifreið fannst mannlaus á bifreiðastæðinu við Látrabjarg nú í morgun. Leit mun halda áfram í dag og aftur á morgun. Hún hefur engan árangur borið enn sem komið er, að því er segir í tilkynningu.
Ekki er talið að hvarf Christians hafi borið að með saknæmum hætti.
Ef einhver hefur orðið var við ferðir Christians frá 18. september sl. þá óskar lögreglan á Vestfjörðum eftir þeim upplýsingum í síma 450 3730 eða 112.