Milljarðar í hágæðahótel

Fosshótel Jökulsárlón verður í 6 byggingum sem tengjast saman.
Fosshótel Jökulsárlón verður í 6 byggingum sem tengjast saman. Tölvumynd/Bjarni Snæbjörnsson arkitekt

Undirbúningur er langt kominn að nýju glæsihóteli á Hnappavöllum, á milli Jökulsárlóns og Skaftafells, sem verður hluti af Fosshótelkeðjunni. Framkvæmdir hefjast fyrir áramót og hljóðar kostnaðaráætlun upp á 1,3-1,4 milljarða. Hótelið verður með 116 herbergjum.

Þá er unnið að hönnun 91 herbergis Fosshótels við Mývatn sem áætlað er að kosti 800-1.000 milljónir.

Til viðbótar við nýju hótelin tvö er unnið að stækkun Fosshótels Húsavíkur sem verður opnað fullbúið sumarið 2016. Kostnaður við breytingarnar er 1,2 milljarðar.

Í umfjöllun um áform þessi í Morgunblaðinu í dag segir Davíð Torfi Ólafsson, framkvæmdastjóri Íslandshótela, sem eiga og reka Fosshótelin, fyrirtækið hafa þá stefnu að fjölga hágæðahótelum úti á landi. Það sé enda skortur á slíkri gistingu.

Landnám í öllum fjórðungum

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert