Tillaga um óbreytt skipulag á Nýlendureitnum

Rússneska rétttrúnaðarkirkjan. Útlit fyrir að hún rísi á Nýlendureit.
Rússneska rétttrúnaðarkirkjan. Útlit fyrir að hún rísi á Nýlendureit. Tölvugerð mynd/Reykjavíkurborg

Skipulagsfulltrúinn í Reykjavík leggur til að deiliskipulag á Nýlendureit, þar sem rússneska rétttrúnaðarkirkjan hefur fengið kirkjulóð við Mýrargötu 21, verði óbreytt.

Hann telur að flutningur kirkjunnar á lóð við horn Seljavegar og Mýrargötu hafi ekki ótvíræða kosti í för með sér, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðin í dag.

„Kirkjan yrði mun stærri á nýjum stað og líklegt að ekki yrði mikil sátt um það, einkum má búast við því að ný staðsetning verði umdeild meðal lóðarhafa nálægra lóða,“ segir í niðurstöðu umsagnar skipulagsfulltrúans. Umhverfis- og skipulagsráð Reykjavíkur samþykkti umsögnina. Breyting á deiliskipulagi Nýlendureits var á dagskrá umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur 24. september sl.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert