Mengun nær frá Húsavík að Blönduósi

Bláa svæðið sýnir hvar líkur eru á mengun frá eldgosinu.
Bláa svæðið sýnir hvar líkur eru á mengun frá eldgosinu. mynd/Veðurstofa Íslands

Veðurstofa Íslands segir að í dag megi búast við gasmengun einkum vestur af eldstöðinni í Holuhrauni. Nær mengunarsvæðið um það bil frá Húsavík að Blönduósi, á hálendinu og á Suðurlandi.

Búist er við lægðagangi yfir landið um helgina með tilheyrandi breytingum í vindátt. Spáin verður þá flókin og getur verið erfitt að henda reiður á því hvar mengunin er og hvert hún stefnir að sögn Veðurstofunnar.

Tekið er fram, að það jákvæða sé að sífelldir snúningar í vindátt ættu að þýða að gasið staldri ekki lengi við á hverjum stað.

Eftir helgi er síðan búist við suðaustan- og sunnanátt verði ríkjandi og er útlit fyrir hvassan vind með köflum.

Spáin er svohljóðandi:

Laugardagur: Suðaustlæg eða breytileg átt. Búast má við gasmengun einkum vestur af eldstöðinni. Mengunarsvæðið nær u.þ.b. frá Húsavík að Blönduósi, á hálendinu suður á

Suðurland.
Sunnudagur: Vestlæg átt. Búast má við gasmengun á Austurlandi.

Nánari upplýsingar á vef Veðurstofu Íslands

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert