Ferðamaður framvísaði um helgina vegabréfi sem reyndist vera falsað. Hann framvísaði ísraelsku vegabréfi í vegabréfaskoðun í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og vaknaði þá grunur um að það væri falsað, sem reyndist svo raunin.
Málið er komið í hefðbundið ferli, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Suðurnesjum.