Stuðningur við ríkisstjórnina 34,0%

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins.
Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Framsóknarflokksins. mbl.is/Ómar

MMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina (stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks) á tímabilinu 20. til 25. september 2014. Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist nú 25,2%, borið saman við 28,2% í síðustu könnun og 26,6% í lok ágúst. Fylgi Bjartrar framtíðar mældist nú 18,8%, borið saman við 17,8% í síðustu könnun. Fylgi Samfylkingarinnar mældist nú 15,2%, borið saman við 16,9% í síðustu könnun og 20,3% í lok ágúst. Vinstri-græn mældust nú með 12,5% fylgi, borið saman við 10,4% í síðustu könnun. Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 12,3%, borið saman við 11,3% í síðustu könnun og mældist fylgi Pírata 9,7%, borið saman við 9,2% í síðustu könnun. Fylgi annarra flokka mældist undir 2%.

Stuðningur við ríkisstjórnina mældist nú 34,0% en mældist 36,3% í síðustu mælingu (sem lauk þann 8. september) og 38,5% í lok ágúst (lauk 28. ágúst).

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“.

Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“.

Fjölda þeirra sem svaraði „einhvern hinna“ í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var samkvæmt spurningum 1 og 2. Samtals voru 77,4% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (6,4%), myndu skila auðu (7,0%), myndu ekki kjósa (3,1%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (6,0%). Myndin sýnir niðurstöðu könnunar að viðbættum efri og neðri vikmörkum miðað við 95% öryggisbil ásamt samanburði við síðustu könnun þar á undan.

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR.
Álitsgjafar MMR eru valdir úr Þjóðskrá þannig að þeir endurspegli lýðfræðilega samsetningu þjóðarinnar á hverjum tíma.
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 1436 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 20. til 25. september 2014

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert