Þétta mjög mælanetið vegna eldgossins

Hraunrennslið við Holuhraun.
Hraunrennslið við Holuhraun. mbl.is/RAX

Pantaður hefur verið nokkur fjöldi handvirkra mengunarmæla sem koma á upp vítt um land. Mælarnir eru ekki nettengdir en þétta mjög mælanetið og bæta verulega upplýsingar um loftgæði. Á vegum Almannavarna ríkisins er verið að vinna viðbragðsáætlun vegna eldsumbrota í Holuhrauni. 

Á vefsvæði Fljótsdalshéraðs kemur fram að haldnir séu tveir símafundir í viku, þar sem fulltrúar almannavarna og sveitarfélaga vítt um land fá nýjustu upplýsingar um stöðu eldgossins og umbrota í Bárðarbungu. Á þeim fundum gefst einnig kostur á því að spyrja vísindamenn og yfirvöld almannavarna um eitt og annað sem málið varðar.

„Eitt af því sem fram kom á síðasta fundi og varðar loftgæði og mælingu eiturefna, var fyrirhuguð uppsetning mæla víða um land. Nú eru komnir nettengdir mælar á Akureyri, Húsavík, 2 á Mývatni, í Kelduhverfi, á Vopnafirði, á Egilsstöðum og svo þrír á Reyðarfirði. Þessir mælar mæla sjálfvirkt mengunina í loftinu og senda niðurstöður inn á netið. Þeir eru hins vegar ekki auðfengnir með litlum fyrirvara.

Búið að panta nokkurn fjölda handvirkra mæla sem koma á upp vítt um land. Af þeim þarf að lesa og verður því reynt að setja þá upp þar sem sólarhrings vakt er til staðar. Þessir mælar verða ekki nettengdir, en þétta mjög mælanetið og bæta verulega upplýsingar um loftgæði.
Hér eystra verða þeir t.d. settir upp á Bakkafirði, Borgarfirði eystri, Seyðisfirði, Norðfirði, Eskifirði, Fáskrúðsfirði, Breiðdalsvík, Djúpavogi og Höfn. Eins verða settir mælar í Fljótsdalsstöð og innst í Jökuldal,“ segir í frétt á vef Fljótsdalshéraðs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert