Tekist á um frávísunarkröfuna í dag

Gísli Freyr Valdórsson er ákærður fyrir brot gegn þagnarskyldu í …
Gísli Freyr Valdórsson er ákærður fyrir brot gegn þagnarskyldu í starfi sínu. mbl.is/Golli

Munnlegur málflutningur fer fram um frávísunarkröfu Gísla Freys Valdórssonar, fyrrverandi aðstoðarmanns innanríkisráðherra, í lekamálinu svokallaða í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir hádegi í dag.

Gísli Freyr er ákærður fyrir brot í starfi sínu gegn þagnaskyldu sem aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur innanríkisráðherra. Í greinargerð Gísla Freys kemur fram að ákæra og rannsókn málsins hafi verið háð miklum annmörkum og því beri að vísa því frá.

Er frávísunarkrafan í fyrsta lagi reist á því að verknaðarlýsing í ákæru sé svo óskýr að málsvörn Gísla verði mjög erfið. Í öðru lagi hafi grunnregla sakamálaréttar um hlutlægni ákærenda ekki verið virt. Í þriðja lagi hafi lögregla ekki gætt meðalhófs við rannsókn málsins. Loks telur Gísli að jafnræðisreglan hafi verið brotin.

Gísli lýsti sig saklausan af ákæru í lekamálinu þegar það var þingfest 16. september. Hann er ákærður fyrir brot gegn þagnar­skyldu í starfi sínu sem aðstoðarmaður innanríkisráðherra, með því að hafa, á tímabilinu frá þriðjudeginum 19. nóvember 2013 til miðvikudagsins 20. nóvember 2013, látið óviðkomandi í té efni samantektar er bar yfirskriftina „Minnisblað varðandi Tony Omos“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert