Full ástæða er til að lækka vexti

Þorvaldur Örn Kristmundsson

Á tæpu ári hefur verðbólgan hjaðnað hratt og er nú 1,8% á ársgrunni. Undanfarna átta mánuði hefur hún verið undir 2,5% verðbólgumarkmiði Seðlabankans sem er lengsta samfellda tímabil verðstöðugleika frá árinu 2003. „Þessi hraða hjöðnun verðbólgu ber árangri síðustu kjarasamninga glöggt vitni. Þar lögðu aðilar vinnumarkaðar upp með að hóflegar launahækkanir myndu stuðla að lægri verðbólgu og meiri kaupmáttaraukningu en ella. Minna gæti orðið meira.“

Þetta segir m.a. í nýrri umfjöllun Samtaka atvinnulífsins um þann árangur sem hefur náðst á undanförnum mánuðum, tvísýna stöðu á vinnumarkaði, horfurnar framundan og mikilvægi samvinnu aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda. Í umfjöllun SA er m.a. bent á að:

  • Kaupmáttur launa í september er 4% hærri en fyrir ári.
  • Á árinu má ætla að kaupmáttur launa vaxi um 3,5% sem er einsdæmi á síðustu fimmtán árum að undanskyldu ofþensluárinu 2007.
  • Svo hröð og mikil aukning kaupmáttar verður ekki varin nema vel sé haldið á spilum í efnahagsstjórn og við gerð kjarasamninga á komandi mánuðum.
  • Seðlabankinn hefur stuðlað að hækkandi raunvöxtum á liðnum misserum sem eru orðnir 3-4 % hærri en í viðskiptalöndunum.
  • Full ástæða er til að lækka vexti þegar verðbólgan hefur hjaðnað svo mikið sem raun ber vitni.
  • Hátt raunvaxtastig er að sliga heimilin.
  • Raunvaxtamunur gagnvart viðskiptalöndunum er allt of mikill og fær ekki staðist til lengri tíma. Munurinn grefur undan samkeppnisstöðu íslenskra fyrirtækja og heldur aftur af fjárfestingu atvinnuveganna.
  • Þó gagnrýna megi Seðlabankann fyrir of hátt raunvaxtastig er honum vorkunn. Enn er of mikil óvissa um verðbólgu á komandi misserum. Ný peningastefna hefur ekki verið mótuð, líkt og stefnt var að. Launahækkanir á vinnumarkaði eru meiri en ráð var fyrir gert og samrýmast ekki verðstöðugleika til lengri tíma. Síðast en ekki síst er ekki samstaða milli aðila vinnumarkaðar og stjórnvalda um efnahagsstefnuna.

Umfjöllunina í heild má lesa á vef SA.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert