Mikil mengun á Austurlandi

Nýlega lá mengunarský yfir Djúpavogi.
Nýlega lá mengunarský yfir Djúpavogi. mynd/Ólafur Björnsson

Háir mengunartoppar mældust um hádegi í dag á Breiðdalsvík og í næsta nágrenni. Mengunin kemur frá eldgosinu í Holuhrauni. Einnig má búast við mengun á Djúpavogi og Fárskrúðsfirði í dag og víðar á Austurlandi, samkvæmt upplýsingum almannavaradeildar ríkislögreglustjóra.

Fólk á svæðinu er beðið um að fylgjast vel með mælum Umhverfisstofnunar á www.loftgaedi.is

Verði fólk vart við mikla mengun er það beðið að halda sig innandyra og forðast óþarfa útiveru. Til að minnka enn áhrif mengunar innandyra er ráðlagt að loka gluggum og hækka á ofnum þegar mengunin gengur yfir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert