Fleiri störf með nýtingu raforku

Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnarðar- og viðskiptaráðherra.
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnarðar- og viðskiptaráðherra. mbl.is/Rósa Braga

Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra skrifaði í dag undir viljayfirlýsingu fyrir hönd ríkisstjórnarinnar um samstillt átak stjórnvalda og sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu um eflingu atvinnulífs og sköpun nýrra starfa með nýtingu raforku sem framleidd er í Blönduvirkjun. 

„Markmiðið með átakinu er að efla atvinnulíf og samkeppnishæfni svæðisins og undirbúa uppbyggingu fyrir orkunýtingu Blönduvirkjunar og jafnframt vinna að markaðssetningu svæðisins fyrir iðnaðarkosti, svo sem fyrir gagnaver. Tilgangurinn er að skapa þann fjölda starfa sem nauðsynlegur er til að stöðva varanlega fólksfækkun í Austur-Húnavatnssýslu,“ segir í tilkynningu.

Aðilar að viljayfirlýsingunni eru ríkisstjórn Íslands, Blönduósbær, Sveitarfélagið Skagaströnd, Húnavatnshreppur og Skagabyggð. Viljayfirlýsingin byggir á þingsályktun Alþingis frá 17. október 2013.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka