Tvær bílveltur urðu í umdæmi lögreglunnar í Árnessýslu í morgun.
Annars vegar fór bíll út af á Þrengslavegi um klukkan 10 í morgun, en að sögn lögreglu urðu engin slys á fólki. Bílstjóri kallaði ekki til lögreglu og hugðist koma bílnum af vettvangi sjálfur.
Hins vegar fór bíll út af á Biskupstungnabraut, og að sögn lögreglu voru þar minniháttar meiðsl á fólki. Bílinn rann út af vegna hálku.
Samkvæmt lögreglu er veðrið á svæðinu nú að versna, og eru bílstjórar því hvattir til að fara varlega í umferðinni.