Kennarafélag Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu mótmælir fyrirhugaðri skerðingu náms til stúdentsprófs og takmörkun á aðgengi eldri nemenda að námi í framhaldsskólum.
Fækkun nemenda í framhaldsskólum landsins mun bitna harðast á fámennari skólum á landsbyggðinni og vart séð að þeir muni lifa af svo harðar aðgerðir. Þetta mun einnig hafa neikvæð áhrif á menntunarstigið á landsbyggðinni.
Þetta kemur fram í ályktun sem félagið samþykkti í dag.
„Hér er að eiga sér stað viðsnúningur í menntapólitík á landinu þar sem stór hópur ungs fólks sem vill ganga menntaveginn er útilokaður frá framhaldsskólum landsins og veitt inn í dýrari úrræði og torveldari. Þetta er sérstaklega alvarlegt fyrir ungt fólk á landsbyggðinni sem hefur fá önnur úrræði að sækja sér menntun en framhaldsskólana.
Styrkur íslenska framhaldsskólans hefur verið sveigjanleiki þar sem komið er til móts við þarfir mismunandi nemenda. Framhaldsskólar á landsbyggðinni hafa þjónað nemendum af landsbyggðinni sem ella þyrftu að fara um langan veg til að afla sér menntunar. Framhaldsskólar á Íslandi eru með þeim ódýrari í samanburðarlöndum okkar og vart séð að aðgerð sem þessi muni spara fjármagn til lengri tíma litið.
Kennarafélag FAS skorar á menntamálaráðherra að snúa af þessari leið og standa vörð um jafnrétti til náms óháð aldri og búsetu,“ segir í ályktuninni.