<span>Súlur - björgunarsveitin á Akureyri og Björgunarsveitin Týr á Svalbarðseyri eru nú að störfum í Víkurskarði þar sem ökumenn lentu í vandræðum í morgun vegna ófærðar. Ekki er þó mikill snjór í skarðinu en nokkuð blint og hált svo eitthvað var um að bílar lentu utan vegar.</span>
<span> </span>
<span>Skarðinu var lokað í morgun beggja vegna og er lokað ennþá. Björgunarsveitir eru nú að ganga úr skugga um að enginn sé í þeim bílum sem þar eru utanvegar.</span>