Menn ógnuðu starfsfólki með hnífi á veitingastað í miðbænum síðdegis í gær. Mennirnir hrifsuðu peninga sem voru í glerflösku á afgreiðsluborðinu og lögðu svo á flótta, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Starfsmaður veitingastaðarins elti mennina að íbúð skammt frá þar sem þeir fóru inn.
Mennirnir voru handteknir og færðir á lögreglustöð og vistaðir í fangageymslu í þágu rannsóknar.