Viðvörun: Glerhálka í kvöld

Víða um sunnan- og vestanvert landið þar sem komið er hægvirði kemur til með að
frysta við jörð fljótlega eftir að birtu bregður undir kvöld og myndast glerhálka þar
sem sólin hefur einnig náð að bræða snjó og bleyta vegina, samkvæmt upplýsingum veðurfræðings Vegagerðarinnar. Sjá nánar á veðurvef mbl.is.

Það eru hálkublettir á Sandskeiði og Hellisheiði og eins víða á Suðurlandi. Hálka eða snjóþekja er á suðurstrandarvegi.

Hálka og snjóþekja er víðast hvar á Vesturlandi og Vestfjörðum.

Á Norðurlandi vestra er einnig hálka eða hálkublettir en snjóþekja á Þverárfjalli. Snjóþekja og skafrenningur er í Víkurskarði og hálka eða snjóþekja víðast hvar á norðausturströndinni. Snjóþekja og óveður er á Hálsum og Hófaskarði og hálka og skafrenningur á Mývatns- og Möðrudalsöræfum.

Á Austurlandi er hálka, snjóþekja og skafrenningur. Hálka og óveður er á Fjarðarheiði og hálka og skafrenningur á Vatnsskarði eystra. Þungfært er á Breiðdalsheiði en Öxi er ófær.

Greiðfært er á Suðausturlandi, þó er óveður í Berufirði og Hamarsfirði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert