Fyrstu umræðu um áfengisfrumvarp lokið

Bjarni Benediktsson, Kristján Þór Júlíusson og Ragnheiður Elín Árnadóttir.
Bjarni Benediktsson, Kristján Þór Júlíusson og Ragnheiður Elín Árnadóttir. mbl.is/Ómar Óskarsson

Fyrstu umræðu um frumvarp Vilhjálms Árnasonar, þingmanns Sjálfstæðisflokks, sem gengur út á að færa áfengissölu frá Vínbúðum ÁTVR og til matvöruverslana, lauk á tíunda tímanum í gærkvöldi. Athygli vekur að atkvæðagreiðsla um framhald málsins er á dagskrá Alþingis í dag.

Í 39. grein þingskapa segir að þegar fyrstu umræðu er lokið gangi frumvarpið til annarrar umræðu og þeirrar nefndar er forseti leggur til. „Atkvæða skal þó leitað ef einhver þingmaður óskar þess, svo og ef önnur tillaga kemur fram um til hvaða nefndar málið fari.“

Nokkrir þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa einmitt verið ósáttir við þá fyrirætlan sem fram kemur í frumvarpinu, að það gangi til allsherjar- og menntamálanefndar. Því sé til skoðunar hvort farið verði fram á atkvæðagreiðslu um hvort frumvarpið fari fremur til velferðarnefndar eða efnahags- og viðskiptanefndar. Samkvæmt heimildum mbl.is hefur ákvörðun um það ekki verið tekin, en þingfundur hefst klukkan 15.

Söknuðu sjónarmiða heilbrigðisráðherra

Við lok fyrstu umræðu í gærkvöldi kvöddu tveir þingmenn Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs sér til hljóðs undir liðnum fundarstjórn forseta. „Það er athyglisvert að umræðunni verði engu að síður að ljúka án þess að sá ráðherra sem fer með heilbrigðismál, með lýðheilsumál, sér ekki ástæðu til þess að svara fyrir hina opinberu heilbrigðisstefnu sem hann er ábyrgur fyrir,“ sagði Steingrímur J. Sigfússon.

Steingrímur hefur farið mikinn í umræðunni og óskaði hann - og fleiri - ítrekað eftir þátttöku Kristjáns Þórs Júlíussonar, heilbrigðisráðherra. „Það eru þá ákveðin skilaboð ef ráðherra sér ekki ástæðu til þess, treystir sér ekki til þess eða finnst óþægilegt að vera settur í það samhengi að ræða þessa hluti.“

Samflokksmaður Steingríms, Ögmundur Jónasson, fylgdist einnig náið með umræðunni en báðir eru þeir eindregið á móti því að frumvarpið nái fram að ganga. „Ég fagnaði því síðdegis að heilbrigðisráðherra skyldi koma til þings, til að vera viðstaddur þessa umræðu eftir að við höfðum óskað margsinnis eftir því árangurslaust. En að sjálfsögðu átti hann ekki að sitja hér sem sýningagripur eða einvörðungu að hlusta á hvað færi hér fram,“ sagði Ögmundur.

Ögmundur hefur í umræðunni ítrekað vísað til sjónarmiða Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, Landlæknis, Norðurlandaráðs og ýmissa samtaka er varða „rétta“ áfengisstefnu. „Þá hefur verið vísað til þess sem stendur á vefsíðu stjórnarráðsins frá 24. janúar síðastliðnum þar sem heilbrigðisráðherra lýsir sjónarmiðum sem ganga í berhögg við það frumvarp sem hér var til umræðu. Ég sakna þess að hafa ekki fengið að heyra afstöðu heilbrigðisráðherra til þessa máls.“

Fyrsta umræða fór fram á fimm dögum og í neðangreindri frétt má sjá brot úr henni:

Frétt mbl.is: „Dóp, en löglegt, sem betur fer“

Birgir Ármannsson og Ögmundur Jónasson ræða saman á Alþingi
Birgir Ármannsson og Ögmundur Jónasson ræða saman á Alþingi mbl.is/Styrmir Kári
Þorsteinn Sæmundsson og Steingrímur J. Sigfússon.
Þorsteinn Sæmundsson og Steingrímur J. Sigfússon. mbl.is/Kristinn
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert