Umferðaróhapp varð sunnan við Borgarfjarðarbrú fyrr í kvöld þegar dekk skaust undan jeppa og lenti framan á öðrum jeppa sem kom úr gagnstæðri átt. Dekkið gjöreyðilagði bílinn, sem er nú óökufær.
Nýlega hafði verið skipt um dekk á öðrum bílnum, og hafði það að sögn lögreglunnar í Borgarnesi líklega ekki verið nægilega vel fest undir bílinn. Af þessum sökum losnaði dekkið undan bílnum með fyrrnefndum afleiðingum.
Enginn slasaðist í óhappinu, en annar bíllinn er mikið skemmdur.