Gæsluvarðhald yfir karlmanni sem grunaður er um kynferðisbrot gegn tveimur átta ára drengjum á Akureyri hefur verið framlengt til 14. nóvember næstkomandi. Sterkur grunur er uppi um að maðurinn hafi með hótun fengið drengina inn í íbúð sína þar sem hann hafi haft þá á sínu valdi um stund.
Þetta kemur fram í Akureyri vikublaði. Þar segir einnig að aðalmeðferð í málinu fari fram í dag í Héraðsdómi Norðurlands eystra. Að sögn lögreglunnar á Akureyri er maðurinn einnig grunaður um að hafa brotið gegn þroskaskertri konu fyrr á þessu ári. Bæði brotin áttu sér stað á Akureyri.