Björgunarsveitir á Austurlandi hafa verið kallaðar út tvisvar sinnum í kvöld vegna fólks sem lent hefur í umferðaróhöppum vegna óveðurs á svæðinu. Engin meiðsl urðu hins vegar á fólki.
Þannig lenti einn bíll utan vegar á Öxi, og þurftu björgunarsveitir að koma bílnum aftur upp á veginn. Þá komu björgunarsveitir ökumanni til hjálpar sem hafði fest bíl sinn í skafli.
Hálka, snjóþekja og skafrenningur er á Héraði og flestum fjallvegum á Austurlandi og þá er Vatnsskarð eystra þungfært. Autt er með ströndinni frá Eskifirði suður í Öræfi.
Á láglendi hefur hiti víða verið rétt ofan frostmarks í dag en það frystir aftur í kvöld og nótt
með staðbundinni ísingarmyndun á vegum. Undir kvöldið má reikna með hríðarmuggu á Austfjörðum og Austurlandi einkum á fjallvegum. Einnig skafrenningi og allhvössum NA-vindi.
Almannavarnir hafa lokað leiðum á hálendinu norðausturlands, norðan Dyngjufjalla.