Gæslan þrisvar fengið gjafir frá Noregi

Varðskipið Þór.
Varðskipið Þór. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Landhelgisgæslan hefur þrisvar fengið búnað frá Norðmönnum að gjöf. Þar með talið hríðskotabyssur. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Gæslunni en vegna umræðunnar undanfarna daga hefur hún ákveðið að birta einhliða samninga sem gerðir hafi verið í þessum efnum. Þar megi sjá magn, verðmat gjafanna og almenna skilmála. Sem fyrr segir er um þrjár gjafir að ræða að sögn Landhelgisgæslunnar.

„Sú fyrsta var á árinu 2011 en þá stóð Landhelgisgæslan frammi fyrir því að þurfa með stuttum fyrirvara að senda tvö varðskip á varasama staði í Miðjarðarhafinu og var í því skyni leitað til Norðmanna um lán á hentugum varnarvopnum. Þannig stóð á að norski flugherinn var á leið til Íslands vegna verkefna.  Herinn leysti málið fyrir Landhelgisgæsluna á tveimur sólarhringum og sendi 50 MP5 hríðskotabyssur sem þeir höfðu aflagt. Vopnin eru geymd í vopnageymslu Landhelgisgæslunnar á Öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli. Verðmat þessarar gjafar var 2.500 NOK per stykki sem er aðeins 1/8 af verði þessara vopna frá framleiðanda í Þýskalandi. Engar greiðslur hafa farið fram og enginn reikningur verið sendur. 

Önnur gjöfin hafi verið innt af hendi í júní 2013 þegar yfirmaður norska heraflans hafi verið staddur hér á landi vegna funda með fulltrúum utanríkisráðuneytisins. „Færði norski herinn þá Landhelgisgæslunni alls 50 hjálma, 50 vesti og 10 hríðskotabyssur af gerðinni MP3. Um þetta var ekki gert sérstakt samkomulag heldur liggur aðeins fyrir farmbréf um þann gjörning. Þessar 10 hríðskotabyssur eru allar í vopnageymslu Landhelgisgæslunnar á Öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli og hafa ekki enn verið teknar í notkun. Verðmat gjafarinnar var 2 NOK. Engar greiðslur hafa verið inntar af hendi og enginn reikningur verið sendur.“

Milliliður varðandi búnað fyrir ýmsar stofnanir

Þriðja vopnagjöfin hafi síðan komið til árið 2013 og komið til landsins með norskri herflutningavél í febrúar á þessu ári. „Þar var um að ræða 250 hríðskotabyssur af gerðinni MP5 en þar af voru 150 ætlaðar Ríkislögreglustjóra, samkvæmt beiðni hans til norskra yfirvalda. Þær hundrað sem eftir standa eru ætlaðar til endurnýjunar og viðhalds fyrir Landhelgisgæsluna. Allar þessar byssur eru geymdar í vopnageymslu Landhelgisgæslunnar á Öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli og hafa ekki verið formlega afgreiddar né afhentar. Verðmat þessarar gjafar var 2.500 NOK per stykki sem er aðeins 1/8 af verði þessara vopna frá framleiðanda í Þýskalandi. Engar greiðslur hafa farið fram og enginn reikningur verið sendur.“

Landhelgisgæslan hafi verið milliliður varðandi beiðni Ríkislögreglustjóra vegna umræddra vopna eins og fram hafi komið en í gegnum árin hafi Landhelgisgæslan haft milligöngu um öflun ýmissa tækja og tæknibúnaðar frá hernaðaryfirvöldum fyrir ýmsar íslenskar stofnanir vegna tengsla sinna við hernaðaryfirvöld víða um heim. Í því sambandi megi nefna veðurratsjár, aðflugsbúnað og flugvallartæki.

„Gjafir sem þessar hafa ekki boðist Landhelgisgæslunni nema á nokkurra áratuga fresti og byggjast á góðu samstarfi Landhelgisgæslunnar við hernaðaryfirvöld nágrannaþjóðanna.  Fjárhagsstaða Landhelgisgæslunnar leyfir ekki endurnýjun búnaðar sem þessa nema með þeim hætti sem hér er rakinn. Því þáði Landhelgisgæslan þetta boð um aflögð vopn í því skyni að endurnýja varnarvopn og eiga varahluti til næstu áratuga. Hér er ekki um að ræða öflugri vopn en verið hafa í vopnasafni Landhelgisgæslunnar fram að þessu. Landhelgisgæslan telur þetta eðlilega framkvæmd og nauðsynlegar ráðstafanir til að viðhalda lágmarksöryggisbúnaði og í fullu samræmi við gildandi lög, reglugerðir og verklagsreglur sem gilda um vopnaeign og vopnaburð Landhelgisgæslunnar og felur þar af leiðandi ekki í sér neina stefnubreytingu í þeim efnum.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert