„Þessi jógúrt gæti talist máltíð! Súr, þykk, rjómakennd og afar bragðgóð,“ segir einn álitsgjafa Huffington Post en á dögunum var fjallað um niðurstöður bragðprófunar á tólf tegundum af mjólkurafurðum sem fást í borginni; grískri jógúrt, hefðbundinni jógúrt og skyri.
Ellefu starfsmenn á ritstjórn miðilsins tóku þátt í bragðprófuninni og bar íslenska MS skyrið sigur úr býtum. Siggi's Skyr var einnig ofarlega á lista, það hafnaði í fjórða sæti.