Minniháttar umferðaróhapp varð í Glerárhverfi á Akureyri í dag, þegar sendibíl var ekið í veg fyrir jeppa, með þeim afleiðingum að ökumaður jeppans missti bílinn út í kant og vinstra framdekkið brotnaði af.
Engin slys urðu á fólki í óhappinu, en samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri orsakaði hálka ekki slysið, þó svo að hálka hafi verið á veginum.