Kisum fagnað á kattadeginum

Bandaríkjamenn hata ekki tyllidaga en í dag er sérlega krúttlegur dagur haldin hátíðlegur þar í landi, nefnilega kattadagurinn. Þar sem mbl.is missti af alþjóðlega kattadeginum í ágúst var ákveðið að stela þeim bandaríska og fagna honum með myndasyrpunni hér að ofan.

Kettir eru vissulega ekki allra en þeir sem unna þeim eru oftar en ekki haldnir eldheitri ástríðu fyrir þessum loðnu krúttum eins og fjöldi kattamyndbanda á YouTube hlýtur að sanna. 

Meðal þeirra sem fögnuðu alþjóðlega kattadeginum í dag var söngkonan Taylor Swift sem kom köttunum sínum að óvörum í miðjum faðmlögum.

<a href="https://instagram.com/p/uvhAM2DvCa/" target="_top">In honor of #NationalCatDay, here is a photo of that one time I caught Meredith and Olivia cuddling.</a>

Una foto publicada por Taylor Swift (@taylorswift) el Oct 10, 2014 at 9:03 PDT

Vanity Fair lét sig heldur ekki vanta í fögnuðinn og kynnti Catness fyrir Katniss.

Aðrir notuðu tilefnið til að vekja athygli á erfiðum aðstæðum katta um allan heim.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert