Sautján ára piltur reyndi að stinga lögregluna á hlaupum í Breiðholtinu í nótt eftir að hafa verið stöðvaður grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna.
Lögreglan hljóp piltinn uppi og kom í ljós að grunur lögreglunnar reyndist á rökum reistur og var því tekið úr honum blóðsýni á lögreglustöð.
Fjórir farþegar voru í bifreiðinni, allir jafnaldrar ökumannsins, og vegna þess ber lögreglu skylda til að tilkynna forráðamönnum viðkomandi afskiptin auk þess að tilkynna ber atvikið til barnaverndaryfirvalda.