Bílafloti Strætisvagna Akureyrar er kominn til ára sinna en meðalaldur bílanna er ellefu ár. Sá elsti er sautján ára gamall en sá yngsti sjö ára. Fjallað er um málið í Vikudegi sem kom út í gær.
Í frétt Vikudags kemur fram að gólfin í tveimur bílum eru ónýt. Stefán Baldursson, forstöðumaður Strætisvagna Akureyrar, segir í samtali við blaðið að bílarnir séu of gamlir. Mikill viðhaldskostnaður sé á gömlum bílum og það bitni á þjónustu við bæjarbúa.
„Oft þarf að skipta út vagni á miðri leið og það kemur fyrir að ferð fellur niður vegna bilana,“ segir Stefán.