Skömmu fyrir klukkan eitt var tæplega tvítugur piltur fluttur á slysadeild í sjúkrabifreið eftir átök í heimahúsi.
Talið er að sá sem fyrir árásinni varð sé nefbrotinn, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Sá sem hafði veitt áverkan var farinn af vettvangi þegar lögregla og sjúkralið komu á staðinn. Mennirnir þekktust, að sögn lögreglu.