Sjálfstæðiskonur styðja Hönnu Birnu

Landssamband sjálfstæðiskvenna lýsir yfir stuðningi við Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, innanríkisráðherra.
Landssamband sjálfstæðiskvenna lýsir yfir stuðningi við Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, innanríkisráðherra. mbl.is/Eggert

Landssamband sjálfstæðiskvenna hefur sent frá sér ályktun um Hönnu Birnu Kristjánsdóttir, varaformann Sjálfstæðisflokksins og innanríkisráðherra, þar sem þær lýsa yfir stuðningi við hana. 

Kemur fram að ályktunin hafi verið samin án aðkomu Þóreyjar Vilhjálmsdóttur, formanns félagsins, sem er aðstoðarmaður ráðherrans. 

Ályktunin er svohljóðandi:

Stjórn Landsambands sjálfstæðiskvenna (LS) lýsir yfir fullum stuðningi við Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, varaformann Sjálfstæðisflokksins og innanríkisráðherra, og hennar störf á vettvangi flokks og ríkisstjórnar.

Á sama tíma og stjórnin harmar brot fyrrverandi aðstoðarmanns hennar og afleiðingar þess, þá er gott að sannleikurinn sé nú loks kominn í ljós. Hanna Birna gat ekki fyrr en á þriðjudag í þessari viku gefið skýringar á upplýsingalekanum en hefur á undanförnum mánuðum samt sem áður ekki vikið sér undan að gefa öll þau svör sem hún mögulega gat. 

Samfélagið og flokkurinn þurfa á sterkum stjórnmálamönnum af báðum kynjum að halda. Það er ósk stjórnar LS að Hanna Birna starfi ótrauð áfram að mikilvægum verkefnum á vettvangi ríkisstjórnar og innan Sjálfstæðisflokksins og óskar henni velfarnaðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert