Karlmaður sem er grunaður um kynferðisbrot gegn tveimur átta ára gömlum drengjum á Akureyri skal áfram sæta gæsluvarðhaldi. Héraðsdómur hefur úrskurðað manninn í gæsluvarðhald til 14. desember eða þar til dómur gengur í málinu.
Þetta kemur fram á vef Vikudags.
Haft er eftir lögreglunni á Akureyri að maðurinn sé einnig grunaður um að hafa brotið gegn þroskaskertri konu á Akureyri fyrr á þessu ári.
Þá kemur fram, að sterkur grunur sé uppi um að maðurinn hafi með hótun fengið drengina inn í íbúð sína þar sem hann hafi haft þá á sínu valdi um stund um miðjan ágúst.
Maðurinn er á fertugsaldri og er grunaður um gróf kynferðisbrot sem geta varðað allt að tíu ára fangelsi.