Kröfuhafar Glitnis greiða atkvæði á fundi í dag um hvort samþykkja eigi tilboð Lífeyrissjóðs verslunarmanna (LIVE) um uppgjör á gjaldmiðlavarnarsamningum sem sjóðurinn gerði fyrir bankahrun.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins er áætlað að sjóðurinn greiði Glitni með erlendum eignum. Fjárhæðin verði talsvert undir tíu milljörðum, að því er fram kemur í ViðskiptaMogganum í dag.