Jólablaðið ókeypis á öllum sölustöðum

Forsíða Jólablaðs Morgunblaðsins 2014
Forsíða Jólablaðs Morgunblaðsins 2014

Með Morgunblaðinu í dag fylgir árlegt Jólablað Morgunblaðsins, 128 síður að stærð. Jólablaðið er stærsta sérblað Morgunblaðsins á árinu og er þetta fjórða árið í röð sem blaðið nær 128 síðum. Blaðinu hefur verið afar vel tekið, bæði af lesendum og auglýsendum, og nokkuð er síðan auglýsingapláss í blaðinu var uppselt.

Í Jólablaðinu er að finna margvíslegt lesefni sem tengist jólunum með ýmsum hætti, ótal uppskriftir frá meistarakokkum jafnt sem áhugamönnum, frásagnir af jólahaldi hér heima og erlendis, föndur og skreytingar ásamt ljúfum jólaminningum þjóðþekktra einstaklinga. Þá er stóru fjölskyldujólaleyndarmáli uppljóstrað í léttu viðtali við þjóðþekktan einstakling.

Jólablaðinu er dreift ókeypis á sölustöðum Morgunblaðsins landið um kring um helgina meðan birgðir endast og eru landsmenn hvattir til að láta þessa vönduðu útgáfu ekki fram hjá sér fara, enda blaðið jafnan eftirsótt og margir sem geyma Jólablöð Morgunblaðsins og safna þeim. Morgunblaðið óskar lesendum sínum góðrar skemmtunar við lestur Jólablaðsins í ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert