Nýtt frístundaheimili rís við Vogaskóla

Frístundaheimilið Vogasel við Vogaskóla mun rísa á næsta ári.
Frístundaheimilið Vogasel við Vogaskóla mun rísa á næsta ári. Mynd: Studio Granda/Reykjavíkurborg

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag að heimila umhverfis- og skipulagssviði að bjóða út framkvæmdir við frístundaheimilið Vogasel við Vogaskóla. Gert er ráð fyrir allt að 110 börnum í Vogaseli.

Fram kemur í tilkynningu frá Reykjavíkurborg, að frístundaheimilið verði 342 fermetrar og sé steinsteypt á einni hæð.  Steypt stétt og grasflöt á yfirborði þakflatar tengist leiksvæði skólalóðarinnar við Vogaskóla.  Hönnun viðbyggingar er að fullu lokið og verður verkið boðið út í nóvember. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir við Vogasel hefjist í upphafi árs 2015 og eru áætluð verklok í árslok það sama ár.

Heildarkostnaður við verkið er áætlaður 165 milljónir króna. Inni í þeirri tölu er frágangur hússins að innan og utan, frágangur lóðar og laus búnaður inn í húsið. Arkitektastofan Studio Granda sá um hönnun frístundaheimilisins, að því er segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert