Stjórn Kvenréttindafélags Íslands hvetur formenn ríkisstjórnarflokkanna, þá Sigmund Davíð Gunnlaugsson og Bjarna Benediktsson, til að rétta við kynjahlutfall í ríkisstjórn Íslands.
Þetta kemur fram í ályktun sem stjórn félagsins hefur sent frá sér.
„Hallað hefur á konur í þeirri ríkisstjórn sem nú er við völd. Þar hafa þrjár konur gegnt ráðherraembættum á móti sex körlum og nú hverfur ein þessara kvenna, Hanna Birna Kristjánsdóttir, úr ríkisstjórn. Vegna þessara breytinga skorar stjórn Kvenréttindafélags Íslands á Bjarna Benediktsson, fjármálaráðherra og formann Sjálfstæðisflokksins, að hafa mikilvægi jafns hlutfall kynja að leiðarljósi þegar ákvörðun verður tekin um skipan ráðherra,“ segir í ályktuninni.