Á fundi fræðsluráðs Hafnarfjarðar í morgun fór Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri yfir málefni Áslandsskóla og kynnti tillögu sem lögð verður fyrir bæjarstjórn um að fallið verði frá því að byggja við skólann. Þess í stað verði fjárfest í innra starfi skólans sem um leið taki forystu í innleiðingu upplýsingatækni í hafnfirsku skólastarfi.
„Tillagan sem lögð var fram í morgun gerir ráð fyrir því að bekkjardeildum verði fækkað í einum árgangi, úr þremur bekkjum í tvo – það er hægt að gera án þess að farið sé yfir viðmið um stærð bekkja. Einnig mun skólinn taka forystu í notkun upplýsingatækni í kennslunni. Munu kennarar og nemendur í 5. – 10. bekk fá afhentar spjaldtölvur og hefðbundin tölvustofa verður nýtt til almennrar kennslu. Þetta gerir það að verkum að ekki þarf að fara í dýrar framkvæmdir vegna húsnæðis,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir formaður fræðsluráðs.
Tillagan sem samþykkt var að vísa til bæjarstjórnar:
,,Bæjarstjórn Hafnarfjarðar samþykkir að hætt verði við viðbyggingu Áslandsskóla sem áætlanir gerðu ráð fyrir að myndu kosta allt að 600-700 milljónir króna. Þess í stað verði fjárfest í innra starfi skólans sem taki forystu í innleiðingu upplýsingatækni í hafnfirsku skólastarfi. Það verði m.a. gert með því að spjaldtölvuvæða alla 5. - 10. bekki og auka stöðugildi í tölvuumsjón um 50% frá 1. janúar næstkomandi. Með þessu verður tölvustofa tekin undir almenna kennslu. Samhliða verði gerðar breytingar á niðurröðun í bekkjardeildir þannig að húsnæði Áslandsskóla ásamt lausum kennslustofum, sem nú eru við skólann, hýsi alla nemendur skólans með góðu móti án stækkunar.“