Níu hafa sótt um stöðu forstjóra Lyfjastofnunar. Skipað verður í embættið frá 1. febrúar 2015 þegar Rannveig Gunnarsdóttir, núverandi forstjóri, lætur af störfum.
Nefnd sem heilbrigðisráðherra hefur skipað mun á næstunni fara yfir umsóknirnar og meta hæfni þeirra, að því er segir á vef velferðarráðuneytisins.
Heilbrigðisráðherra skipar forstjóra Lyfjastofnunar til fimm ára í senn samkvæmt lyfjalögum.
Umsækjendur um stöðu forstjóra eru eftirtaldir;