Tvö minniháttar umferðaróhöpp urðu við Goðafoss eftir hádegi í dag. Önnur bifreiðin hafnaði utan vegar en hinn skautaði aftan á aðra bifreið.
Óhöppin má rekja til ísingar sem myndaðist á veginum og urðu með stuttu millibili.
Einn leitaði sér sjálfur aðhlynningar eftir annað óhappið.