130 lögðu ólöglega

Lögreglan hafði afskipti af rúmlega hundrað og þrjátíu ökutækjum á höfuðborgarsvæðinu um helgina, en þeim var öllum lagt ólöglega.

„Þetta lofar ekki góðu, nú þegar jólin eru framundan og viðbúið að margir verði á ferðinni,“ segir í færslu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á Facebook. „Við hvetjum ökumenn til að leggja löglega, m.a. til að þeir komist hjá útgjöldum en sekt vegna stöðubrots er 5000 kr.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert