Ættingjar Arkadiusz Pawel Maciag, sem lögreglan á Suðurnesjum leitaði að aðfaranótt mánudags ásamt björgunarsveitum, höfðu samband við lögregluna og komu á framfæri kærum þökkum til allra sem aðstoðuðu við leitina.
Á sunnudagskvöldi klukkan 23.40 óskaði lögreglan á Suðurnesjum eftir aðstoð björgunarsveita af suðvesturhorni landsins við leitina og innan mjög skamms tíma voru komnir 70 leitarmenn til leitar í mjög slæmu veðri, segir í færslu á Facebook-síðu lögreglustjórans á Suðurnesjum.
„Það eru viss forréttindi fyrir okkur íbúa þessa lands að geta leitað til þessara fagmanna hvenær sem er og í hvaða veðri sem er,“ segir í færslu lögreglunnar.
Pawel fannst látinn klukkan 12.10 á mánudag á Miðnesheiði norður af öryggisgirðingu sem afmarkar haftasvæði Keflavíkurflugvallar. Hann var í heimsókn hjá ættingjum sínum hér á landi. Pawel var pólskur, 42 ára að aldri, og mun hafa átt við andleg veikindi að stríða. Hann fór frá dvalarstað sínum í Reykjanesbæ um kl. 17.30 á sunnudag og þegar hann skilaði sér ekki heim leituðu ættingjar hans til lögreglu.
Frétt mbl.is: Maðurinn fannst látinn