Lægst verð en minnst úrval

Piparkökur.
Piparkökur. mbl.is/Kristinn

Bónus var oftast með lægsta verðið og Samkaup-Úrval oftast með hæsta verðið í nýrri verðkönnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði á bökunarvörum í lágvöruverðsverslunum og stórmörkuðum víða um land, þriðjudaginn 25. nóvember. Kannað var verð á 113 algengum vörum til baksturs og konfektgerðar.

Samkaup-Úrval var oftast með hæsta verðið eða í 42 tilvikum af 113 og Iceland í 31 tilviki. Bónus var oftast með lægsta verðið í könnuninni eða í 56 tilvikum af 113, Krónan í 22 tilvikum og Víðir í 16. Í um helmingi tilfella var um eða undir 2 kr. verðmunur á Bónus og Krónunni.

Flestar vörurnar sem skoðaðar voru, voru fáanlegar hjá Fjarðarkaupum eða 109 af 113 en næstflestar voru til hjá Víði eða 98, fæstar vörutegundirnar sem skoðaðar voru að þessu sinni voru fáanlegar hjá Bónus eða aðeins 67 og 69 hjá Nóatúni.

Mikill verðmunur reyndist vera á þeim bökunarvörum sem skoðaðar voru. Algengast var að sjá 25-50% verðmun á milli verslana. Mestur verðmunur að þessu sinni var á 200 gr. af suðusúkkulaði frá Lindu sem var ódýrast á 198 kr. hjá Iceland en dýrast á 328 kr. hjá Samkaupum Úrval sem er 130 kr. verðmunur eða 66%. Minnstur verðmunur var á 500 gr. smjöri sem var ódýrast á 344 kr. hjá Hagkaupum en dýrast á 351 kr. hjá Nettó sem er 2% verðmunur.

Könnunin var gerð á sama tíma í eftirtöldum verslunum: Bónus, Krónunni, Nettó, Iceland, Víði, Fjarðarkaupum, Samkaupum Úrval, Hagkaupum og Nóatúni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert