Nú er það orðið ljóst að íslenska kokkalandsliðið náði 5. sæti á heimsmeistaramótinu í Lúxemborg og er þetta besti árangur Íslands hingað til, segir í frétt um málið á vefnum freisting.is.
Það var Singapúr sem hafnaði í fyrsta sæti, Svíþjóð varð í öðru sæti og Bandaríkin í því þriðja.
Kokkalandslíð Íslands hlaut gullverðlaun í báðum greinunum sem það keppti í í heimsmeistrarakeppninni í matreiðslu sem fram fór í Lúxemborg. Liðið fékk þannig gullverðlaun fyrir þriggja rétta heita máltíð og gullverðlaun fyrir kalda borðið sitt.
María Shramko, einn liðsmanna kokkalandsliðsins, hlaut einnig þrenn gullverðlaun og ein bronsverðlaun í einstaklingskeppni í sykurstyttum.
Í kokkalandsliðinu eru: Hafliði Halldórsson, framkvæmdastjóri liðsins, Garra, Þráinn Freyr Vigfússon fyrirliði, Lava Bláa lóninu, Viktor Örn Andrésson liðsstjóri, Lava Bláa lóninu, Fannar Vernharðsson VOX, Bjarni Siguróli Jakobsson Slippbarnum, Ylfa Helgadóttir Kopar, Hafsteinn Ólafsson Apótekinu, Axel Clausen Fiskmarkaðnum, Garðar Kári Garðarsson Strikinu, Daníel Cochran Kolabrautinni, Ari Þór Gunnarsson Fiskfélaginu, Hrafnkell Sigríðarson Bunk Bar og María Shramko sykurskreytingameistari.