Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók ölvaðan mann í vesturbænum gærkvöldi sem átti eitthvað vantalað við strætóskýli sem varð á vegi hans. Öskraði hann á skýlið og sparkaði í það. Hann gistir nú fangaklefa vegna ölvunar.
Síðdegis í gær var annar ölvaður maður handtekinn á kaffihúsi í miðborginni en honum hafði skömmu áður verið vísað út af sama kaffihúsi. Maðurinn gistir fangaklefa sökum ástands.
Tilkynnt var um þjófnað úr tveimur bifreiðum í Reykjavík í gær, annarri í Breiðholti og hinni í austurborginni. Einhverju var stolið úr bifreiðunum í báðum tilvikum.